gamlar sögur
favorite blogs skiptinemar Thura Kvenno Hilmir My pictures! My ITALIAN pictures!
ALGHERO contact... me sendu mer e-mail berglind_86@hotmail.com. Hah!
REYKJAVIK
HEY SKRÝTINN DRAUMUR MAÐUR......... Mig dreymdi mjög einkennilega sem er mjög skrýtið því venjulega dreymir mig ekkert furðulegt og stundum bara ekki neitt... en allavega það var þannig... að það var kvöld og úti var snjór!! ég labbaði í byrjunina á götunni minni (eins og þið vitið sem lesið þetta blogg á ég heima í miðjunni á henni) og var að fara að sækja Örnu vinkonu mína en ef ég væri að fara heim til hennar myndi ég fara í endann á götunni minni...en jæja ég mætti þó Örnu rétt hjá fótboltavellinum...Arna var eitthvað einkennileg það var einhver púki í henni en ég pældi þó ekkert meira í því... Við vorum að labba áleiðis heim til mín þegar Arna stoppar hjá húsi sem er í byrjuninni í götunni minni og segir við mig: hey sjáðu þetta...svo tekur hún upp nokkurskonar málningarbolta og dúndrar honum inn í garðinn hjá fólkinu...það heyrist stór hvellur og ég er bara alveg gapandi hissa en Arna hlær bara djöfullegum hlátri og ég næ að stynja upp úr mér bara Hvað varstu að gera? og bara við verðum að hlaupa í burtu áður en fólkið sem á heima þarna kemur út og sér að þetta erum við...En Arna er voða róleg en fylgir mér þó þegar ég vil koma okkur í burtu...mér finnst við ekkert komast voða hratt áfram og á leiðinni er Arna að segja mér að í þessu húsi eigi heima stelpa sem er alltaf svo fýld og að stelpurnar hafi sagt að hún væri svo leiðinleg að hún gæti örugglega ekki hreyft sig!! Ég segi ekki neitt en lít aftur fyrir mig og sé bara svona 3-4 hunda og ólar fasta við þá og einhver manneskja sem átti eftir að koma fyrir hornið á beygjunni í götunni sem við vorum í...Ég byrja að hlaupa hraðar og reyni að toga Örnu með sem einhverra hluta vegna vill ekki hlaupa...ég dreg hana þá bak við skúr sem er þarna rétt hjá íþróttahúsinu og við bíðum þar... eftir smástund koma hundarnir en þeir eru alveg rólegir og eigandinn var ekki í hinum enda ólanna heldur voru þeir bundnir við staur... ég vissi að þá hlyti eigandinn að vera í grennd og myndi finna okkur ef við myndum vera þarna öllu lengur...Við byrjum þá að hlaupa rólega af stað en þá kemur ljóshærð stelpa (einhvernveginn vissi ég að þetta væri stelpa sem væri yngri en við og væri í sama grunnskóla og við höfðum verið í) út úr hurðinni á íþróttahöllinni og segir: aha ég fann ykkur... við snúum samt baki í hana en hún er allt í einu komin á hjól og hjólar fyrir framan okkur og stoppar og segir hvernig ætlið þið nú að komast fram hjá mér.... Við löbbum þá sitthvoru megin við hana og þegar við erum komnar fram hjá þá snýr Arna sér við og segir: SVONA...svo kasta ég einhverju drasli í dekkið á hjólinu hennar þannig að það festist.....svo löbbum við lengra og erum komnar í hlíðina og þar er stórt hvítt hús (sem er ekki til í alvörunni) og einhvernveginn fannst okkur að við ættum að fara inn, svo að við gerum það og þar er í gangi mjög einkennilegt partý og fólkið þar inni var allt fólk sem við þekkjum....Allir voru að borða marengsköku og segja mmmm.... svo allt í einu birtist stelpan sem við höfðum verið að flýja og otar í okkur eldhúshnífi...ég spyr hana þá hvað hún sé eiginlega að gera en þá segir hún að Marta kennari hafi sagt henni að taka hnífinn með sér þegar hún fór að elta okkur.... Ég segi við hana að Marta hafi örugglega haldið að við værum einhverjir hættulegir kallar og hún ætti að nota hann til að verjast en ekki að ráðast á einhvern með honum...áður en hún getur sagt nokkuð kemur húsráðandi og segir henni að fara út þar sem honum líki ekki við fólk sem er með vopn...þá fer stelpan út og ég vakna.... posted by Berglind 10:54 f.h.
home