berglind segir: mér finnst léttmjólk góð en mér finnst nýmjólk vond

gamlar sögur

favorite blogs
skiptinemar
Thura
Kvenno
Hilmir
My pictures!
My ITALIAN pictures!

ALGHEROThe WeatherPixie contact...
me
sendu mer e-mail berglind_86@hotmail.com. Hah!

REYKJAVIK The WeatherPixie

This page is powered by Blogger.

miðvikudagur, september 03, 2003
Skrýtið fólk þarna í Sardiníu eftirfarandi er það eina sem ég fann um Sardiníu í gagnagrunni morgunblaðsins

Fjórði elsti maður heims látinn

Giovanni Frau, elsti maður Ítalíu og fjórði elsti maður heims, er látinn, 112 ára að aldri. Frau var bóndi og þakkaði langlífi sitt matvælum sem hann ræktaði sjálfur. Hann lést í svefni eftir að hafa neitað að setja nokkuð inn fyrir sínar varir í tvo daga. Frau var fæddur 29. desember 1890 og lifði því tvenn aldamót.
Hann bjó alla tíð á sama bænum, nærri fjallaþorpinu Orroli á eyjunni Sardiníu, og fór aldrei þaðan nema einu sinni, þegar hann gegndi herþjónustu í fyrri heimsstyrjöldinni. Sardinía er þekkt fyrir gamalmenni sín, Antonio Todde, sem bjó skammt frá bæ Frau, var skráður elsti maður heims í Heimsmetabók Guinnes en hann lést í janúar 2002, rétt áður en hann varð 113 ára. Frau er nú skráður fjórði elsti maður heims í bókinni en elstur er Japaninn Yukichi Chuganji sem er 114 ára. Elsta kona heims er um þessar mundir 115 ára og er einnig japönsk. Hún heitir Kamato Hongo og er fædd 16. september 1887.

posted by Berglind 5:46 e.h.
Comments: Skrifa ummæli



home

www.flickr.com
berglindogdaniela's photos More of berglindogdaniela's photos